
Vivian stuttir sokkar
Stuttir rifflaðir dömusokkar
Stuttir dömusokkar úr bómullarblöndu, rifflaðir og með fínlegum pífukanti efst. Liturinn er mildur ljósblár og viskósinn gefur efninu daufan gljáa.
Sokkar sem fá að sjást, við ökklabuxur, strigaskó eða sandala. MP Denmark er danskt sokkamerki frá 1937.
- Efni · 70% bómull, 17% pólýamíð, 10% viskósi, 3% elastan
- Litur · Dusty Blue, ljósblár
- Stærðir · 37/39 og 40/42
Veldu

Vivian stuttir sokkar
Verð1.090 kr.





