NORDCLUB
NORDCLUB
NORDCLUB er sameiginlegur vildarklúbbur fyrir Nordika.is og Nordlet.is.
Með því að skrá þig í NORDCLUB færðu aðgang að tilboðum, fréttum, sérkjörum og fríðindum frá bæði Nordika.is og Nordlet.is, eftir því hvaða samþykki þú hefur veitt.
Fríðindi NORDCLUB
Sem meðlimur í NORDCLUB getur þú fengið:
-
2.000 kr. inneign þegar þú verslar fyrir 10.000 kr. eða meira á Nordika.is
-
fría sendingu þegar verslað er fyrir meira en 19.995 kr.
-
aðgang að sérkjörum og tilboðum fyrir meðlimi
-
upplýsingar um nýjar vörur, herferðir og viðburði
-
sérvalin tilboð frá Nordika.is og Nordlet.is
2.000 kr. inneign
Meðlimir í NORDCLUB fá 2.000 kr. inneign þegar þeir versla fyrir 10.000 kr. eða meira á Nordika.is.
Lágmarksupphæðin 10.000 kr. miðast við vöruverð eftir afslætti og án sendingarkostnaðar.
Inneignin er veitt einu sinni fyrir hvern meðlim.
Þegar skilyrði fyrir inneign hafa verið uppfyllt fær viðskiptavinur sendan tölvupóst með inneigninni.
Inneignin gildir eingöngu á Nordika.is og er ekki hægt að nýta hana á Nordlet.is, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Inneignin gildir aðeins við kaup á vörum og gildir ekki við kaup á gjafakortum.
Inneignin rennur ekki út.
Inneignin er veitt sem afsláttarkóði. Ekki er hægt að nota tvo afsláttarkóða í sömu pöntun. Ef viðskiptavinur notar inneignina er því almennt ekki hægt að nota annan afsláttarkóða í sömu pöntun, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Inneignin er ekki greidd út í reiðufé og gildir ekki afturvirkt á eldri pantanir.
Ef pöntun sem veitti rétt til 2.000 kr. inneignar er skilað að fullu fellur réttur til inneignarinnar niður.
Ef hluta pöntunar er skilað og endanlegt vöruverð fer undir 10.000 kr. eftir skil fellur réttur til inneignarinnar einnig niður.
Ef inneign hefur þegar verið notuð áður en skilað er getur seljandi dregið fjárhæð inneignarinnar frá endurgreiðslu eða leiðrétt málið með öðrum sanngjörnum hætti.
Frí sending
Meðlimir í NORDCLUB fá fría sendingu þegar verslað er fyrir meira en 19.995 kr., nema annað sé sérstaklega tekið fram í greiðsluferli eða í tengslum við tiltekin tilboð.
Frí sending miðast við endanlegt kaupverð eftir afslætti.
Sérkjör fyrir meðlimi
NORDCLUB getur boðið upp á sérkjör, tilboð og afslætti sem eru eingöngu í boði fyrir meðlimi.
Slík sérkjör geta gilt á Nordika.is, Nordlet.is eða báðum vefverslunum, eftir því sem fram kemur í hverju tilviki.
Tilboð, afslættir og sérkjör geta verið tímabundin, háð lagerstöðu eða bundin við tilteknar vörur, vöruflokka eða herferðir.
Markaðssamþykki
Með skráningu í NORDCLUB getur viðskiptavinur samþykkt að fá send tilboð, fréttir, kynningar og annað markaðsefni frá bæði Nordika.is og Nordlet.is.
Markaðssamþykki fyrir NORDCLUB nær til samskipta frá báðum vefverslunum, nema annað sé sérstaklega tekið fram við skráningu.
Viðskiptavinur getur hvenær sem er afskráð sig úr markaðssamskiptum með afskráningarhlekk í tölvupósti eða með því að hafa samband við þjónustuver viðkomandi vefverslunar.
Breytingar á NORDCLUB
Heildverslunin Rún ehf. áskilur sér rétt til að breyta fríðindum, tilboðum, sérkjörum og skilmálum NORDCLUB án fyrirvara.
Breytingar hafa ekki áhrif á réttindi sem viðskiptavinur hefur þegar áunnið sér, nema annað leiði af lögum eða skilmálum tiltekins tilboðs.
Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar um NORDCLUB getur þú haft samband við þjónustuver viðkomandi vefverslunar.
Nordika.is
nordika@nordika.is
Nordlet.is
nordlet@nordlet.is
