Skip to content

Karfa

Karfan þín er tóm

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um pantanir, sendingar, skil, endurgreiðslur, gjafakort og NORDCLUB.

Þessi síða gildir fyrir Nordika.is, sem er rekin af Heildversluninni Rún ehf.


Pantanir

Ég fékk ekki pöntunarstaðfestingu, hvað geri ég?

Athugaðu fyrst hvort staðfestingin hafi farið í ruslpóst eða kynningarhólf í tölvupóstinum þínum.

Ef þú finnur hana ekki skaltu hafa samband við þjónustuver Nordika og láta netfangið sem þú notaðir við pöntun fylgja með.

Nordika.is
nordika@nordika.is


Get ég breytt eða hætt við pöntun eftir að hún er lögð inn?

Við afgreiðum pantanir mjög hratt og því er ekki alltaf hægt að breyta eða hætta við pöntun eftir að hún hefur verið lögð inn.

Ef þú þarft að breyta pöntun skaltu hafa samband við þjónustuver eins fljótt og auðið er. Við reynum að aðstoða ef pöntunin hefur ekki þegar verið afgreidd.


Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?

Greiðsluleiðir í vefversluninni eru þær sem birtast í greiðsluferli hverju sinni, meðal annars Teya og Netgíró.

Við tökum ekki við eða geymum kortaupplýsingar viðskiptavina.


Sendingar og afhending

Hvað tekur langan tíma að fá pöntun afhenta?

Pantanir eru að jafnaði afgreiddar samdægurs eða innan eins sólarhrings á virkum dögum.

Almennt má þó miða við að afhending taki 1 til 3 virka daga, eftir afhendingarstað, sendingarleið og álagi hverju sinni.

Pantanir á höfuðborgarsvæðinu geta í mörgum tilfellum verið afhentar samdægurs ef pantað er fyrir kl. 14:00 á virkum degi.


Hver sér um afhendingu?

Sendingar eru afhentar með Dropp.

Pantanir eru afgreiddar frá lager okkar að Köllunarklettsvegi 2 í Reykjavík og frá Górilla vöruhúsi, sem annast vörumeðhöndlun, pökkun og afhendingu pantana til flutningsaðila eftir því sem við á.


Hvað kostar sendingin?

Sending á Dropp-stað kostar 990 kr. um allt land. Heimsending kostar 1.590 kr. á höfuðborgarsvæðinu og 1.790 kr. utan þess. Verð miðast við sendingar allt að 10 kg og eru með virðisaukaskatti.


Bjóðið þið upp á fría sendingu?

Já. Boðið er upp á fría sendingu þegar verslað er fyrir 19.995 kr. eða meira, nema annað sé sérstaklega tekið fram í greiðsluferli eða í tengslum við tiltekin tilboð.

Frí sending miðast við endanlegt kaupverð eftir afslætti.


Get ég sótt netpöntun hjá Górilla vöruhúsi?

Nei. Ekki er boðið upp á að sækja netpantanir hjá Górilla vöruhúsi eða hjá Heildversluninni Rún ehf.

Allar netpantanir eru afhentar með þeim sendingarleiðum sem eru í boði í greiðsluferli hverju sinni.


Hvað gerist ef ég sæki ekki sendinguna?

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að sækja sendingu innan þess tíma sem flutningsaðili gefur upp.

Ef sending er ekki sótt eða kemur til baka til seljanda getur viðskiptavinur þurft að bera þann kostnað sem hlýst af endursendingu, endurafhendingu eða annarri meðhöndlun.


Hvað ef ég skráði rangar afhendingarupplýsingar?

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að skrá réttar afhendingarupplýsingar við pöntun.

Ef afhending tefst, mistekst eða sending kemur til baka vegna rangra eða ófullnægjandi upplýsinga getur viðskiptavinur þurft að bera þann kostnað sem hlýst af endursendingu, endurafhendingu eða annarri meðhöndlun.


Skil og endurgreiðslur

Get ég skilað vöru?

Já. Þú getur skilað vöru innan 14 daga frá því að þú eða aðili sem þú tilnefnir tekur við henni.

Varan þarf að vera ónotuð, með miðum og í upprunalegum umbúðum eftir því sem við á.


Hvernig skila ég vöru?

Skráðu þig inn á mínar síður með netfanginu sem þú notaðir við kaupin, opnaðu pöntunina og veldu „Skila vöru". Þegar skilin hafa verið samþykkt færðu staðfestingu í tölvupósti.

Settu vöruna í kassann ásamt skilamiðanum sem fylgdi pöntuninni og skildu pakkann eftir á næsta Dropp-stað.

Ekki er hægt að skila vörum hjá Górilla vöruhúsi.


Kostar að skila vöru?

Já. Fast skilagjald, 990 kr. fyrir hverja skilasendingu, dregst frá endurgreiðslunni. Sé fleiri en einni vöru úr sömu pöntun skilað í sömu sendingu er skilagjaldið aðeins tekið einu sinni.

Ekkert skilagjald er tekið ef varan reyndist gölluð eða röng vara var send; þá greiðum við líka flutninginn.


Get ég skipt vöru í aðra stærð eða lit?

Við bjóðum ekki bein vöruskipti, þar sem varan sem þú vilt fá í staðinn getur verið uppseld á meðan skilin eru í vinnslu.

Skilaðu vörunni samkvæmt skilaferlinu og leggðu inn nýja pöntun um leið, þú þarft ekki að bíða eftir endurgreiðslunni. Nýja pöntunin er greidd og send á venjulegum kjörum.


Hvað ef ég týni skilamiðanum?

Ef skilamiði hefur týnst skaltu hafa samband við þjónustuver Nordika áður en vöru er skilað. Vinsamlegast láttu pöntunarnúmer fylgja með.

Nordika.is
nordika@nordika.is


Er sendingarkostnaður endurgreiddur þegar ég skila vöru?

Nei. Sendingarkostnaður sem greiddur var við upphaflega pöntun er ekki endurgreiddur.

Endurgreiðsla nær til vöruverðs þeirrar vöru sem skilað er, að frádregnu skilagjaldi.


Get ég skilað vöru eftir 14 daga?

Skil eftir að 14 daga skilaréttur er liðinn eru almennt ekki samþykkt.

Seljandi getur þó samþykkt skil í undantekningartilvikum, eftir mati hverju sinni. Slík skil kunna að vera endurgreidd með inneign í stað endurgreiðslu á upprunalegan greiðslumáta.


Hvaða vörum er ekki hægt að skila?

Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila eftirfarandi vörum ef umbúðir hafa verið opnaðar, innsigli rofið, varan hefur verið mátuð eða notuð:

  • nærfatnaði

  • sundfatnaði

  • sokkum og sokkabuxum

Skil á þessum vörum eru ekki skráð á mínum síðum. Ef umbúðir eru óopnaðar og varan ónotuð getur þú óskað eftir skilum með tölvupósti á nordika@nordika.is innan 14 daga. Þetta á ekki við ef vara er gölluð.


Hvað ef varan er með bletti, lykt eða farða?

Ef vara ber lykt, farða, bletti eða önnur sýnileg ummerki um notkun er málið metið hverju sinni.

Seljandi getur hafnað skilum eða dregið verðrýrnun frá endurgreiðslu ef varan telst ekki í söluhæfu ástandi.


Endurgreiðslur

Hvenær fæ ég endurgreiðslu?

Við endurgreiðum innan 5 virkra daga frá því að varan berst okkur og hefur verið yfirfarin.

Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumiðli og notaður var við upphafleg kaup, nema þú samþykkir annað sérstaklega, svo sem inneignarnótu.


Hvað fæ ég endurgreitt ef ég keypti vöru á afslætti?

Ef vara var keypt með afsláttarkóða, tilboði, pakkatilboði eða á lækkuðu verði miðast endurgreiðsla við það verð sem þú greiddir fyrir vöruna við kaup.


Hvað er dregið frá endurgreiðslunni?

Skilagjaldið, 990 kr. fyrir hverja skilasendingu. Sendingarkostnaður upphaflegu pöntunarinnar er ekki endurgreiddur. Ekkert er dregið frá ef varan var gölluð eða röng vara var send.


Gjafakort

Hversu lengi gilda gjafakort?

Gjafakort gilda í fjögur ár frá útgáfudegi, nema lengri gildistími sé sérstaklega tekinn fram.


Hvar gilda gjafakort?

Gjafakort gilda við kaup á vörum á Nordika.is. Þau eru ekki endurgreidd í reiðufé og gilda ekki við kaup á öðrum gjafakortum.


NORDCLUB

Hvað er NORDCLUB?

NORDCLUB er vildarklúbbur Nordika.is.

Með þátttöku í NORDCLUB getur þú fengið tilboð, fréttir, kynningar og annað efni frá Nordika.is, eftir því hvaða samþykki þú hefur veitt.


Hvernig afskrái ég mig úr markaðssamskiptum?

Þú getur hvenær sem er afskráð þig úr markaðssamskiptum með afskráningarhlekk í tölvupósti eða með því að hafa samband við þjónustuver Nordika.


Gallaðar eða rangar vörur

Hvað geri ég ef vara er gölluð, skemmd eða röng vara hefur verið send?

Ef þú telur vöru vera gallaða, skemmda eða ef röng vara hefur verið send skaltu hafa samband við þjónustuver Nordika eins fljótt og auðið er. Við leysum málið án kostnaðar fyrir þig.

Vinsamlegast sendu pöntunarnúmer, stutta lýsingu á málinu og myndir ef þær hjálpa til við að meta málið.

Nordika.is
nordika@nordika.is


Skilmálar og stefnur

Hvar finn ég skilmála og stefnur?

Nánari upplýsingar má finna á eftirfarandi síðum:

  • Almennir viðskiptaskilmálar

  • Skilaréttur

  • Sendingar og afhending

  • Persónuverndarstefna

  • Vafrakökustefna

  • NORDCLUB


Aðstoð

Hvernig næ ég sambandi við þjónustuver?

Ef þú hefur spurningar um pöntun, sendingu, skil, endurgreiðslu, gjafakort eða NORDCLUB getur þú haft samband við þjónustuver Nordika.

Nordika.is
nordika@nordika.is

EMPTY DOM REMOVE PROTECTOR