



Lesgleraugu Týpa C svört
Kringlótt lesgleraugu með mattri, svartri umgjörð með mjúkri áferð. Sniðið er klassískt og látlaust, umgjörðin sést en yfirgnæfir ekki andlitið. Glerin eru úr akrýli, þunn og létt. Lesgleraugu í bókina, blaðið og símann.
Have A Look er danskt gleraugnamerki, stofnað 2012, gleraugun eru hönnuð í Danmörku.
- Umgjörð úr lífplasti, 45 % úr náttúrulegri laxerolíu, létt og þolir hnjask.
- Sveigjanlegir armar sem laga sig að andlitinu.
- Sniðið fer vel við ferköntuð og hjartalaga andlit.
- Allir málmhlutar nikkelfríir, filthulstur úr endurunnum plastflöskum fylgir.
- Breidd umgjarðar 13,8 cm, gler 4,5 cm á breidd og 3,8 cm á hæð, armar 14,4 cm.
Styrkur +1, +1,5, +2, +2,5 og +3. Viðmið merkisins: +1 um fertugt, +2 um fimmtugt, +3 um sextugt.
Stíll TypeC-001-Soft-L.
Veldu









