

Brook Taverner Blússa Riola Crepe, Hvítur
Kaupirðu fyrir fyrirtæki?
Þessi vara fæst á fyrirtækjakjörum hjá Rún, fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga með VSK númer.
Sækja um fyrirtækjaviðskiptiÞegar með aðgang? Innskráning hjá Rún
Hvít blússa með löngum ermum og kringlóttu hálsmáli úr krepefni (crepe de chine), léttu ofnu efni með fínni, örlítið kornóttri áferð sem fellur vel. Felling niður framstykkið, saumar við brjóst sem gefa lögun, ein gyllt tala á ermalíningu og gylltur rennilás að aftan. Blússa í vinnuna, undir jakka eða ein sér við buxur og pils.
Brook Taverner er breskt fatamerki frá 1912.
- Langar ermar, kringlótt hálsmál.
- Felling að framan, gyllt tala á ermalíningu, gylltur rennilás að aftan.
- Krepefni, 195 g/m².
- Má þvo í þvottavél.
- Hvít. Sama blússa í svörtu og dökkbláu heitir Roma, stíll 2279.
100 % pólýester (endurunnið). Stærð 12R, bresk dömustærð (UK 12 samsvarar um það bil 40), R er venjuleg sídd.
Stíll 2264A.
Klassískar vörur á frábæru verði - bættu þeim við í körfuna
Choose options









