



Sally blússa
Vörunúmer (MPN) · F1457
Ofin sumarblússa fyrir stelpur með mynstri af fiðrildum, blómum og köflum. Púffur á öxlunum gefa fyllingu og bláir kantar á þeim draga fram litina í mynstrinu. Blússan er tekin saman í mittið og víkkar þar fyrir neðan eins og lítið pils.
Hálsmálið er ferkantað og blússan hneppist að aftan. Hún er úr sama efni og með sama mynstri og Sally stuttbuxurnar, svo úr verður sett. Fliink er danskt barnafatamerki.
- Snið · Ferkantað hálsmál, púffur á öxlum, víkkar frá mitti
- Lokun · Hneppt að aftan
- Efni · 100% bómull, ofið
- Litur · Sandshell, mynstur með fiðrildum, blómum og köflum
- Umhirða · Má þvo við 30 gráður á stuttri vindingu, ekki í þurrkara
- Stærðir · 80, 86, 98 og 116
Veldu









