





Reading glasses Mood-brown sugar
Stór, ferköntuð lesgleraugu með hálfgegnsærri brúnni umgjörð, liturinn heitir brown sugar. Mood er stór umgjörð, oversize, og þó létt og þægileg, hornin sveigjast létt upp á við og ramma andlitið inn. Umgjörðin fer sérstaklega vel við kringlótt, sporöskjulaga og hjartalaga andlit. Lesgleraugu fyrir blaðið við morgunkaffið og smáa letrið á umbúðunum.
Have A Look er danskt gleraugnamerki, stofnað 2012, gleraugun eru hönnuð í Danmörku.
- Umgjörð úr lífplasti, 45 % úr náttúrulegri laxerolíu, létt og gerð til að endast.
- Sveigjanlegir armar með fjaðrahjörum sem laga sig að ólíkum andlitum.
- Akrýllinsur, þunnar og mjög léttar.
- Filthulstur úr 100 % GRS vottuðu endurunnu pólýesteri fylgir.
- Breidd umgjarðar 13,9 cm, gler 5,4 cm á breidd og 4,2 cm á hæð, armar 13,7 cm.
Styrkur +1, +1,5, +2, +2,5 og +3.
Stíll Mood-552-Shine-L.
Veldu











