323.700 kr.Original price was: 323.700 kr..258.960 kr.Current price is: 258.960 kr..
Ný glæsileg espresso kaffivél frá Gaggia Milano sem farið hefur sigurför um heiminn enda á hún fáa sína líka. Glæsilega hönnuð úr stáli og spegilgleri með lita snertiskjá. Auk þess að bjóða upp á 19 mismunandi drykki þá er vélin búin fjölmörgum stillingum til þess að tryggja hinn fullkomna kaffibolla. Má þar nefna stillinguna Coffee Boost fyrir líklega besta espressobolla sem nokkur Automatic espressovél býður upp á og Espresso Plus fyrir léttara eða fyllra kaffi eftir þínum óskum. Þá eru 4 stillingar fyrir mjólkurfroðu því hún þarf að passa fyrir drykkinn þinn og þú vilt ekki eins froðu fyrir t.d. Latte og Cappuccino. Það er að sjálfsögðu líka flóunarstútur ef þú vilt sjá um froðuna. Það er minni fyrir 4 drykki og hægt er að forhita bollahitarann með tímastilli. Gaggia Accademia Glass er vélin sem fullkomnar eldhúsið.
Þú getir kymmt þér ítarlegar upplýsingar um þessa einstöku vél inni á heimasíðu hennar. https://accademia.gaggia.com/