Skilmálar

Pantanir:

Við hjá Nordika afgreiðum pantanir þegar greiðsla hefur borist. Þegar greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.

Greiðsla:

Öll verð í netverslunni eru í íslenskum krónum, með virðisaukaskatti.

Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti eða íslensku debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar, því fær Nordika aldrei kortaupplýsingar kaupanda. Einnig er hægt að greiða með Netgíró og Pei.

Sendingarmáti:

Allar pantanir eru afhentar á næsta pósthúsi með tilheyrandi sendingarkostnaði sem greiðist af kaupanda við greiðslu pöntunar. Afhendingar- og flutningsskilmálar Póstsins gilda um allar sendingar. Nordika ber enga ábyrgð á tjóni eða töfum í sendingu.

Það tekur allt að 1 virkan dag að afgreiða pöntunina. Sendingartími er 1-3 virkir dagar. Þó getur komið fyrir að vörur séu tímabundið uppseldar og munum við þá strax hafa samband í síma eða með tölvupósti. Vörur sem eru uppseldar í lengri tíma eru annaðhvort merktar sem uppseldar eða fjarlægðar úr vefverslun.

Vöruskil:

Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð og í upprunalegu ástandi, í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Tilkynna skal vöruskil á nordika@nordika.is. Athugið þegar vöru er skilað ber kaupandi ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist okkur. Kaupandi greiðir sendingarkostnað sé vöru skilað. Sé vara endursend verður hún að berast á heimilisfang Nordika.

Hafi viðskiptavinur fengið skemmda eða ranga vöru, ber honum að upplýsa okkur um það við fyrsta tækifæri og munum við taka fulla ábyrgð á því.

Fyrirvari:

Nordika áskilar sér rétt til verðbreytinga án fyrirvara. Allar upplýsingar og verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og myndbrengl. Nordika áskilur sér rétt til að hætta við pöntun komi í ljós að varan sé vitlaust verðmerkt eða uppseld. Í þeim tilfellum er viðskiptavini endurgreitt.

Ábyrgð:

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við  kaupdagsetningu til einstaklinga. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi)er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.

Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum, þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en í 2 ár. Til dæmis er rafhlaða rekstrarvara og getur þurft að endurnýja rafhlöðuna áður en ábyrgð á vélbúnaði rennur út. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þó að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála. Ef til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema svo beri skylda gagnvart lögum.

Lög og varnarþing:

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli, í lögsagnarumdæmi seljanda.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað.