Lýsing
Crystal X-5 er gríðarlega öflugt spinning hjól fyrir alla. Hjólið er með sterkan og stöðugan stálramma, vegur 50kg og hámarksþyngd notanda er 225kg. 20kg kasthjól tryggir mjúkan og jafnan snúning. Mjög fjölbreyttar stillingar á sæti og handfangi þannig að auðvelt er að finna bestu mögulegu stöðu fyrir hvern og einn. Hjólið er með flutningshjól að framan þannig að auðvelt er að færa það til.
- Kasthjól – 20kg
- Hámarksþyngd notanda – 225kg
- Stýrisstillingar – Upp/Niður – Fram/Aftur
- Sætisstillingar – Upp/Niður – Fram/Aftur
- Pedalar – Festing yfir rist báðum megin
- Stærð (LxBxxH) – 128cm x 60cm x 120cm
- Þyngd 50kg